Færsluflokkur: Bloggar

Þúsundir síkát í Grindavík

 

Ég held að þúsundir séu síkátAR

Auk þess held ég að sjóari sé karlkynsorð (sjóarinN).

 

Hver skyldi svo hreppa Sterkasta mann Íslands í verðlaun? Og hvað er hægt að gera við hann?

(En kannski er átt við TITILINN Sterkast maður Íslands? Þá er þetta ekki eins skemmtilegt.)


mbl.is Þúsundir síkát í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hondúras segi sig úr Samtökum Ameríkuríkja

 

Mikið hefur á síðari tímum borið á undarlegri óskhyggju í fyrirsögnum blaða:

Dæmi:
Skattahækkanir skili litlu
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item286286/

Mann rekur í rogastans yfir því að nokkur skuli óska eftir því að skattahækkanir verði til lítils gagns, enda kemur í ljós við lestur greinarinnar að svo er ekki.
Í fyrstunni mætti því ætla að pretvilla sé í fyrirsögninni.

En því miður virðist þetta vera enn eitt tilfelli af málvillufaraldri sem herjar á íslenska fjölmiðla um þessar mundir:

Mogginn telur æskilegt að leit að vírus endi með smiti:
Tækni & vísindi | mbl.is | 31.3.2009 | 23:34
Vírus smitist við leit

og að fjöldi manns í Danmörku verði atvinnulaus:
Erlent | mbl | 31.3 | 23:16
100.000 missi vinnu í Danmörku

DV lætur ekki sitt eftir liggja og vænir Brasiliuforseta um að  vilja koma ábyrgðinni á kreppunni á bláeyga hvítingja:
DV 27/3: http://www.dv.is/frettir/2009/3/26/hvitt-folk-med-bla-augu-beri-abyrgd-kreppunni/
Hvítt fólk með blá augu beri ábyrgð á kreppunni  (Lula)

En að öllu samanlögðu er þú RÚV líklega illviljaðasti miðillinn: leggur m.a. til að fermingarbörn reyki gras og að rauðu kjöti auðnist að valda heilsutjóni:
Rúv:  26.03.2009 15:06
Jafnvel fermingarbörn reyki gras

RÚV 25.03.2009 08:55
Rautt kjöt skaði heilsuna

Lokaniðurstaðan er:
Fréttamenn valdi málspjöllum!
Heyr vora bæn.

Í alvöru talað - hafa fjölmiðlarnir enga málglæpalögreglu?


mbl.is Hondúras segi sig úr Samtökum Ameríkuríkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ankannalegar umritanir

Á sínum tíma tók Morgunblaðið þátt í vinnuhópi sem gekk frá reglum um umritun úr slafneskum málum á íslensku, enda var ekki vanþörf á.

Þess vegna er leitt að sjá að þessar reglur eru virtar að vettugi.

Af hverju skrifa menn LúkasjenkÓ þótt "ó" sé gjörsamlega út í hött miðað við raunverulegan framburð nafnsins?

 

Það sama gildir um endinguna -IJ sem menn einhverra hluta vegna afskræma og skrifa bara -Í (Dostojevskí t.d.) .

Það er jafn vitlaust að skrifa Dostojevskí (sleppa joðinu) og að skrifa Tolsto í stað Tolstoj.

-ij og -oj eru tvær útgáfur af sömu endingu.

Mér er vel kunnugt um hve illa rússneskum Íslandsvinum  er við það að nöfnum þeirra sé misþyrmt á þennan hátt; þið megið gjarna hafa samband við Valerij Berkov þessu til staðfestingar (vpberkov@yahoo.no).

Samkvæmt reglum er rétt umritun á eftirnafni hvitrússneska harðstjórans Lúkashenko.

 Þegr menn forðum daga rituðu Grómykó  var nafnið orðið óþekkjanlegt fyrir rússnesk eyru.

Sjá nánar um þetta í Rússnesk-íslenskri orðabók, bls.  821-823.


mbl.is Mótmæltu aftökum Hvít-Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Helgi Haraldsson

Höfundur

Helgi Haraldsson
Helgi Haraldsson
Professor emeritus við Óslóarháskóla

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband