Færsluflokkur: Bloggar
24.11.2010 | 11:08
Lagos verði stærsta borg Afríku
Af hverju er blaðamaðurinn að mæla með þessu?
Lagos verði stærsta borg Afríku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2010 | 07:01
Þúsundir síkát í Grindavík
Ég held að þúsundir séu síkátAR
Auk þess held ég að sjóari sé karlkynsorð (sjóarinN).
Hver skyldi svo hreppa Sterkasta mann Íslands í verðlaun? Og hvað er hægt að gera við hann?
(En kannski er átt við TITILINN Sterkast maður Íslands? Þá er þetta ekki eins skemmtilegt.)
Þúsundir síkát í Grindavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.6.2010 | 16:15
Robin Søderling
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2009 | 06:39
Tvírætt í meira lagi!
að stuðla eigi (=ekki??) að því að sambönd ...
Áfangasigur í málefnum samkynhneigðra í Ástralíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2009 | 16:37
Hondúras segi sig úr Samtökum Ameríkuríkja
Mikið hefur á síðari tímum borið á undarlegri óskhyggju í fyrirsögnum blaða:
Dæmi:
Skattahækkanir skili litlu
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item286286/
Mann rekur í rogastans yfir því að nokkur skuli óska eftir því að skattahækkanir verði til lítils gagns, enda kemur í ljós við lestur greinarinnar að svo er ekki.
Í fyrstunni mætti því ætla að pretvilla sé í fyrirsögninni.
En því miður virðist þetta vera enn eitt tilfelli af málvillufaraldri sem herjar á íslenska fjölmiðla um þessar mundir:
Mogginn telur æskilegt að leit að vírus endi með smiti:
Tækni & vísindi | mbl.is | 31.3.2009 | 23:34
Vírus smitist við leit
og að fjöldi manns í Danmörku verði atvinnulaus:
Erlent | mbl | 31.3 | 23:16
100.000 missi vinnu í Danmörku
DV lætur ekki sitt eftir liggja og vænir Brasiliuforseta um að vilja koma ábyrgðinni á kreppunni á bláeyga hvítingja:
DV 27/3: http://www.dv.is/frettir/2009/3/26/hvitt-folk-med-bla-augu-beri-abyrgd-kreppunni/
Hvítt fólk með blá augu beri ábyrgð á kreppunni (Lula)
En að öllu samanlögðu er þú RÚV líklega illviljaðasti miðillinn: leggur m.a. til að fermingarbörn reyki gras og að rauðu kjöti auðnist að valda heilsutjóni:
Rúv: 26.03.2009 15:06
Jafnvel fermingarbörn reyki gras
RÚV 25.03.2009 08:55
Rautt kjöt skaði heilsuna
Lokaniðurstaðan er:
Fréttamenn valdi málspjöllum!
Heyr vora bæn.
Í alvöru talað - hafa fjölmiðlarnir enga málglæpalögreglu?
Hondúras segi sig úr Samtökum Ameríkuríkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.7.2009 | 20:44
Ankannalegar umritanir
Á sínum tíma tók Morgunblaðið þátt í vinnuhópi sem gekk frá reglum um umritun úr slafneskum málum á íslensku, enda var ekki vanþörf á.
Þess vegna er leitt að sjá að þessar reglur eru virtar að vettugi.
Af hverju skrifa menn LúkasjenkÓ þótt "ó" sé gjörsamlega út í hött miðað við raunverulegan framburð nafnsins?
Það sama gildir um endinguna -IJ sem menn einhverra hluta vegna afskræma og skrifa bara -Í (Dostojevskí t.d.) .
Það er jafn vitlaust að skrifa Dostojevskí (sleppa joðinu) og að skrifa Tolsto í stað Tolstoj.
-ij og -oj eru tvær útgáfur af sömu endingu.
Mér er vel kunnugt um hve illa rússneskum Íslandsvinum er við það að nöfnum þeirra sé misþyrmt á þennan hátt; þið megið gjarna hafa samband við Valerij Berkov þessu til staðfestingar (vpberkov@yahoo.no).
Samkvæmt reglum er rétt umritun á eftirnafni hvitrússneska harðstjórans Lúkashenko.
Þegr menn forðum daga rituðu Grómykó var nafnið orðið óþekkjanlegt fyrir rússnesk eyru.
Sjá nánar um þetta í Rússnesk-íslenskri orðabók, bls. 821-823.
Mótmæltu aftökum Hvít-Rússa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Helgi Haraldsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 268
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar